Hlusta.is

Einar Hjörleifsson Kvaran (1859-1938)

Skáldsögur:  

Anderson

eftir Einar Hjörleifsson Kvaran

Skemmtileg og áhugaverð noveletta þar sem höfundur teflir saman nýja tímanum og hinum gamla.

Gull

eftir Einar Kvaran

Gull er framhald sögunnar Ofurefli og hinn óviðjafnanlegi stílisti Einar Kvaran heldur áfram að segja frá persónunum sem hann kynnti þar til sögunnar og rekur örlög þeirra af mikilli næmni. Aldís Baldvinsdóttir les.

Gull

eftir Einar Kvaran

Gull er framhald sögunnar Ofurefli og hinn óviðafnanlegi stílisti Einar Kvaran heldur áfram að segja frá persónunum sem hann kynnti þar til sögunnar og rekur örlög þeirra af mikilli næmni. Guðmundur Ingi Kristjánsson les.

Litli-Hvammur

eftir Einar Kvaran

Sagan kom fyrst út árið 1898. Á þessum tíma var Einar enn nokkuð hallur undir raunsæisstefnuna. Sagan sem gerist í sveit er á margan hátt mjög dæmigerð fyrir þennan tíma og raunsæisstefnuna og eins og fyrri daginn tekst Einari alltaf vel upp í lýsingum sínum á smælingjum og þeim sem minna mega sín.

Ofurefli

eftir Einar Kvaran

Ofurefli er fyrsta Reykjavíkursagan, örlagasaga frá fyrstu árum 20. aldarinnar. Aldís Baldvinsdóttir les.

Ofurefli

eftir Einar Kvaran

Ofurefli er fyrsta Reykjavíkursagan, örlagasaga frá fyrstu árum 20. aldarinnar. Guðmundur Ingi Kristjánsson les.

Vistaskipti

eftir Einar Hjörleifsson Kvaran

Vistaskipti er ein af hinum sígildu íslensku sveitasögum í anda raunsæis. Hér segir frá piltinum Steina sem er á sveitinni eftir lát föður síns.

   
Smásögur:  

Góð boð

eftir Einar Hjörleifsson Kvaran

 

Hallgrímur

eftir Einar Kvaran

Hallgrímur er dulræn saga eftir Einar Kvaran, en hann samdi nokkrar slíkar. Látið vera að hlusta á hana í myrkri ef þið eruð myrkfælin!

Marjas

eftir Einar Kvaran

Marjas er ein kunnasta saga Einars Kvaran og þó hún sé látlaus á yfirborðinu býr mikil spenna og kraftur í þessari stórkostlegu sögu.

Óskin

eftir Einar Kvaran

Þó að Einar Kvaran væri sannfærður spíritisti tók hann sjálfan sig ekki alltaf mjög hátíðlega, eins og sagan Óskin ber með sér. Sagan fjallar um engilinn Jónas sem gerir eitthvað af sér á himnum og er refsað með því að þurfa að fara til jarðarinnar og láta einhver mannanna börn gera sér góðverk.

Reykur

eftir Einar Kvaran

Áhugaverð og skemmtileg smásaga.

Sveinn káti

eftir Einar Kvaran

Sveinn káti er á mörkum þess að vera smásaga og minningabrot. Sagan er með fyrstu smásögum Einars Kvaran og strax þá koma fram sterk höfundareinkenni ásamt hinum persónulega stíl sem einkenndi verk hans alla tíð. Hafa margir viljað meina að Sveinn káti sé með betri smásögum.

Vonir

eftir Einar Kvaran

Sagan Vonir fjallar um fólk sem heldur frá Íslandi til Ameríku að leita sér betra lífs. Höfundur dregur upp stórkostlegar myndir og lýsingarnar á umhverfinu sem tók á móti þessum íslensku vonarbörnum eru með því besta sem skrifað hefur verið á íslensku.

   
Æviágrip:  

Um Gest Pálsson

eftir Einar Hjörleifsson Kvaran

Gestur Pálsson og Einar Kvaran kynntust ungir í skóla og voru alla tíð góðir vinir. Áður en Gestur dó bað hann Einar að skrifa eftir sig og vilja margir meina að þessi lýsing Einars á Gesti sé frábær lýsing á manninum, sögð af þeirri háttvísi sem Einari var í blóð borin.

   
Þýðingar:  

Eftir dauðann - bréf frá Júlíu

eftir W.T. Stead, í þýðingu Einars H. Kvaran

Bréf frá Júlíu er áhugaverð bók sem sótt er nokkuð langt að, eða alla leið til andaheima. Byggir hún á ósjálfráðri skrift miðilsins Stead og er það stúlka að nafni Júlía sem skrifar í gegnum hann.

 

Hlusta.is