| Skáldsögur: |
|
 |
Skugginn af svartri flugu
eftir Erlend Jónsson
Skugginn af svartri flugu eftir Erlend Jónsson kom fyrst út árið 2002. Sagan er bæði skemmtileg og spennandi, og auk þess endurspeglar hún íslenskan veruleika á áhugaverðan hátt og fellur t.a.m. vel inn í þær umræður sem efnahagshrunið kallaði fram. |
| |
|
| Smásögur: |
|
 |
Farseðlar til Argentínu
eftir Erlend Jónsson
Kynslóðabil, hugsjónir og gildi eru meginefni smásögunnar Farseðlar til Argentínu úr samnefndu smásagnasafni Erlendar Jónssonar. Sögusviðið er Reykjavík um miðbik tuttugustu aldarinnar. |
 |
Framavonir
eftir Erlend Jónsson
Hér segir frá Páli Pálssyni sem stefnir hátt innan Véltækni- og framfarastofnunar ríkisins, en þegar stöðuhækkunin sem hann vonast eftir er í annað sinn veitt öðrum, tekur hann til sinna ráða. |
 |
Horft til æskuslóða
eftir Erlend Jónsson
Horft til æskuslóða er smásaga eftir Erlend Jónsson, úr safninu Farseðlar til Argentínu sem kom fyrst út árið 1987. |
 |
Leyndarmál kennarans
eftir Erlend Jónsson
Hér er á ferðinni raunsönn saga úr samtímanum, saga um kennara sem ætlar að hætta kennslu, að lokinni rúmlega 40 ára langri starfsævi við sama skóla, og einbeita sér að því að skrifa ævisögu sína. |
 |
Lífið á Breiðósi
eftir Erlend Jónsson
Hér segir frá unglingspilti sem á ekki sjö dagana sæla, hvorki heima fyrir né í skólanum. Sérstaklega virðist skólastjóranum vera illa við hann. Kvöld eitt verður pilturinn vitni að atviki sem hann ætlar sér að nota sem vopn gegn skólastjóranum. |
 |
Saga úr sveitinni
eftir Erlend Jónsson
Saga úr sveitinni eftir Erlend Jónsson er brosleg sýn á lífið í sveitinni fyrir norðan, frá sjónarhorni tólf ára aðkomudrengs. |
 |
Stjórnmálanámskeið
eftir Erlend Jónsson
Piparsveinninn Aðalsteinn er farinn að örvænta yfir árangurslausri viðleitni til að leiðrétta kvenmannsleysið, þegar honum er ráðlagt að fara heldur út í pólitík. Það gerir Aðalsteinn - með óvæntum afleiðingum. |
 |
Sundnámskeið
eftir Erlend Jónsson
Hér segir frá tíu ára dreng sem hefur nýlega misst föður sinn og er sendur í héraðsskólann, þar sem hann þarf að kljást við skapstyggan skólastjóra, stríðna samnemendur og vatnshræðslu. |
| |
|
| Ljóð: |
|
 |
Borgarmúr
eftir Erlend Jónsson
Bókin Borgarmúr eftir Erlend Jónsson kom út árið 1989 og var fjórða ljóðabók höfundar. Ljóð Erlends eru mjög persónuleg en hafa um leið almenna skírskotun í samtímann og ættu allir að hafa gaman af að lesa þau. |
 |
Raddir dagsins
eftir Erlend Jónsson
Raddir dagsins kom fyrst út árið 2000 og er sjöunda ljóðabók höfundar. Eins og jafnan þegar Erlendur á í hlut eru ljóðin hreinskiptin og einlæg og ekki verið að fara í kringum hlutina. |
| |
|
| Æviminningar: |
|
 |
Að kvöldi dags
eftir Erlend Jónsson
Að kvöldi dags er safn minningarþátta Erlendar Jónssonar skálds og kennara. Erlendur kann vel þá list að segja frá og halda athygli lesandans. Hér er á ferðinni skemmtileg og einlæg frásögn sem allir ættu að hafa gaman af. |
 |
Svipmót og manngerð
eftir Erlend Jónsson
Erlendur Jónsson kennari, rithöfundur og bókmenntagagnrýnandi segir hér frá kynnum sínum af rithöfundum, útgefendum og öðrum sem létu að sér kveða í menningarlífi þjóðarinnar á seinni hluta liðinnar aldar. |