Sagan Hofstaðabræður er áhugaverð dramatísk saga í 10 köflum sem gerist á þeim tímum þegar kaþólskan er að víkja fyrir Lútherstrú. Segja má að umgjörð sögunnar séu átökin milli þeirra Jóns Arasonar biskups og sona hans og Daða Guðmundssonar í Snóksdal.
Sögur Jónasar eru skrifaðar í raunsæisstíl, og hann gerir lítið í því að skreyta orðfærið með hástemmdum lýsingum. Í sögunni um Jón halta fer saman næmur skilningur á efninu og skemmtileg frásagnargleði.
Hægt er að halda því fram að Jónas frá Hrafnagili hafi verið fyrsti sakamálasagnahöfundur okkar Íslendinga, en hann skrifaði nokkrar slíkar og byggði þær á sönnum atburðum. Ein af þesum sögum er Kálfagerðisbræður.
Íslenskir þjóðhættir eftir Jónas frá Hrafnagili er merkilegt rit þar sem höfundur segir á lifandi og áhugaverðan hátt frá lifnaðarháttum Íslendinga fyrr á tímum.