Sagan Brynjólfur biskup Sveinsson kom fyrst út árið 1882 og vakti þá verulega athygli. Höfundur sögunnar, Torfhildur Hólm, var stórmerk kona og fyrst íslenskra kvenna til að hafa atvinnu af ritstörfum.
Jón Arason hefur mörgum verið hugleikinn sem einn stórbrotnasti leiðtogi þjóðarinnar en það var hans ógæfa að vera uppi á þeim tímum þegar samfélagið kallaði eftir nýjum sið.