Hlusta.is
íslenskar skáldsögur

Anderson

eftir Einar Hjörleifsson Kvaran

Skemmtileg og áhugaverð noveletta þar sem höfundur teflir saman nýja tímanum og hinum gamla.

Anna frá Stóruborg

eftir Jón Trausta

Sagan Anna frá Stóruborg er söguleg skáldsaga og byggir eins og fleiri sögur Jóns Trausta á heimildum og munnmælasögum. Sagan hefur allt frá því hún kom út notið gríðarlegra vinsælda hjá íslensku þjóðinni rétt eins og sögurnar um Höllu og heiðarbýlið.

Ást og auður

eftir Jóhann Gunnar Sigurðsson

Í þessari örlagasögu eftir Jóhann Gunnar Sigurðsson segir frá stúlkunni Sigríði, bóndanum Gísla sem ann henni hugástum og kaupmanninum Þórarni sem giftist henni.

Brasilíufararnir

eftir Jóhann Magnús Bjarnason

Sagan Brasilíufararnir er spennu- og ástarsaga sem segir frá ævintýrum Íslendinga á framandi slóðum.

Brynjólfur biskup

eftir Torfhildi Hólm

Sagan Brynjólfur biskup Sveinsson kom fyrst út árið 1882 og vakti þá verulega athygli. Höfundur sögunnar, Torfhildur Hólm, var stórmerk kona og fyrst íslenskra kvenna til að hafa atvinnu af ritstörfum.

Eiríkur Hansson: I. Bernskan

eftir Jóhann Magnús Bjarnason

Hér er sögð saga drengsins Eiríks Hanssonar frá því hann fæðist á Íslandi og flyst sjö ára gamall til Vesturheims og baráttu hans til að fóta sig í nýju landi. Þetta er skemmtileg saga sem allir unnendur góðra bóka geta haft gagn og gaman af að heyra.

Eiríkur Hansson: II. Baráttan

eftir Jóhann Magnús Bjarnason

Hér er sögð saga drengsins Eiríks Hanssonar frá því hann fæðist á Íslandi og flyst sjö ára gamall til Vesturheims og baráttu hans til að fóta sig í nýju landi. Þetta er skemmtileg saga sem allir unnendur góðra bóka geta haft gagn og gaman af að heyra.

Eiríkur Hansson: III. Þráin

eftir Jóhann Magnús Bjarnason

Hér er sögð saga drengsins Eiríks Hanssonar frá því hann fæðist á Íslandi og flyst sjö ára gamall til Vesturheims og baráttu hans til að fóta sig í nýju landi. Þetta er skemmtileg saga sem allir unnendur góðra bóka geta haft gagn og gaman af að heyra.

Gull

eftir Einar Kvaran

Gull er framhald sögunnar Ofurefli og hinn óviðjafnanlegi stílisti Einar Kvaran heldur áfram að segja frá persónunum sem hann kynnti þar til sögunnar og rekur örlög þeirra af mikilli næmni.

Halla

eftir Jón Trausta

Halla var ein fyrsta almenna metsölubókin hér á landi.

Heiðarbýlið I: Barnið

eftir Jón Trausta

Fyrsta sagan í flokknum Heiðarbýlinu, sem er framhald af sögunni Höllu.

Heiðarbýlið II: Grenjaskyttan

eftir Jón Trausta

Grenjaskyttan er hluti af ritröðinni Halla og heiðarbýlið, sem naut gríðarlegra vinsælda á sínum tíma. Sagan hefur að geyma allt sem prýða má góða sögu, átök, rómantík, litríkar persónur og stórkostlegar náttúrulýsingar.

Heiðarbýlið III: Fylgsnið

eftir Jón Trausta

Fylgsnið er hluti af ritröðinni Halla og heiðarbýlið. Segja má að sagan sé sjálfstætt framhald og hægt er að lesa hana án þess að hafa lesið sögurnar á undan, en skemmtilegra er að lesa þær í réttri röð.

Heiðarbýlið IV: Þorradægur og Sögulok

eftir Jón Trausta

Þorradægur er hluti af ritröðinni Halla og heiðarbýlið. Segja má að sagan sé sjálfstætt framhald og hægt er að lesa hana án þess að hafa lesið sögurnar á undan, en skemmtilegra er að lesa þær í réttri röð.

Heljarslóðarorrusta

eftir Benedikt Gröndal

Heljarslóðarorrusta er óborganleg skáldsaga Benedikts Gröndal þar sem hann hæðist að stríði og samtíma sínum á leiftrandi og skemmtilegan hátt. Björn Björnsson les.

Hofstaðabræður

eftir Jónas Jónasson frá Hrafnagili

Sagan Hofstaðabræður er áhugaverð dramatísk saga í 10 köflum sem gerist á þeim tímum þegar kaþólskan er að víkja fyrir Lútherstrú. Segja má að umgjörð sögunnar séu átökin milli þeirra Jóns Arasonar biskups og sona hans og Daða Guðmundssonar í Snóksdal.

Hugleiðingar og viðtöl

eftir Matthías Johannessen

Í bókinni er húmanistinn, skáldið og ritstjórinn staddur í miðju kaldastríðinu og Pasternak vísar höfundi veginn í óbilandi trú sinni á frelsi. Með dagbókarfærslum og blaðagreinum styður Matthías mál sitt og skemmtir lesendum með „lifandi“ tilvitnunum og tilvísunum.

Hækkandi stjarna

eftir Jón Trausta

Í Hækkandi stjörnu segir frá systkinunum Kristínu og Þorleifi en þau voru börn Björns Einarssonar Jórsalafara og Sólveigar Þorsteinsdóttur konu hans. Fylgir höfundur í öllum stærstu dráttum því sem vitað er um afdrif þeirra en skáldar í eyðurnar. Stutt en skemmtileg saga sem allir unnendur góðra sagnfræðilegra skáldsagna ættu að hafa gaman af.

Í Rauðárdalnum (1. bindi)

eftir Jóhann Magnús Bjarnason

Í Rauðárdalnum er mikilfengleg skáldsaga eftir Vestur-Íslendinginn Jóhann Magnús Bjarnasonsem segir frá íslensku fólki sem nemur land Í Kanada og ævintýrum þess þar. Sagan er bæði skemmtileg og spennandi, en um leið einlæg og djúp. Sagan skiptist í þrjár bækur.

Jón biskup Arason

eftir Torfhildi Hólm

Jón Arason hefur mörgum verið hugleikinn sem einn stórbrotnasti leiðtogi þjóðarinnar en það var hans ógæfa að vera uppi á þeim tímum þegar samfélagið kallaði eftir nýjum sið.

Jón halti

eftir Jónas Jónasson frá Hrafnagili

Sögur Jónasar eru skrifaðar í raunsæisstíl, og hann gerir lítið í því að skreyta orðfærið með hástemmdum lýsingum. Í sögunni um Jón halta fer saman næmur skilningur á efninu og skemmtileg frásagnargleði.

Júdas

eftir Sigurð Róbertsson

Hér segir frá hinum eina sanna Júdasi Ískaríot, en sjónarhornið er ólíkt því sem við erum vön að fylgja og er óhætt að segja að sagan veiti okkur nýja sýn inn í þessa þekktu sögu úr Biblíunni.

Kálfagerðisbræður

eftir Jónas Jónasson frá Hrafnagili

Hægt er að halda því fram að Jónas frá Hrafnagili hafi verið fyrsti sakamálasagnahöfundur okkar Íslendinga, en hann skrifaði nokkrar slíkar og byggði þær á sönnum atburðum. Ein af þesum sögum er Kálfagerðisbræður.

Kærleiksheimilið

eftir Gest Pálsson

Gestur Pálsson var einn af Verðandi-mönnum en þeir boðuðu raunsæið með tímariti sínu fyrstir allra á Íslandi. Sögur Gests hafa löngum þótt bera af öðrum samtímasögum og er Kærleiksheimilið af mörgum talin vera hans besta saga.

Leysing

eftir Jón Trausta

Leysing var næsta bók Jóns Trausta sem kom út á eftir Höllu. Átti hún töluverðan þátt í því að afla honum þeirra vinsælda sem hann naut á sínum tíma, enda skemmtileg og hrífandi saga.

Litli-Hvammur

eftir Einar Kvaran

Sagan kom fyrst út árið 1898. Á þessum tíma var Einar enn nokkuð hallur undir raunsæisstefnuna. Sagan sem gerist í sveit er á margan hátt mjög dæmigerð fyrir þennan tíma og raunsæisstefnuna og eins og fyrri daginn tekst Einari alltaf vel upp í lýsingum sínum á smælingjum og þeim sem minna mega sín.

Mannamunur

eftir Jón Mýrdal

Skáldsagan Mannamunur eftir Jón Mýrdal kom fyrst út árið 1872 og hefur lifað með þjóðinni síðan þá. Þrátt fyrir að vera barn síns tíma býr hún yfir ákveðnum tærleika sem gerir það að verkum að ólíkar kynslóðir finna sig í henni.

Morgunn lífsins

eftir Kristmann Guðmundsson

Sagan á sér stað við hafnlausa strönd í sunnlensku samfélagi á seinni hluta 19. aldar. Á yfirborðinu virðist mannlífið kyrrstætt og staðnað en undiraldan er ógnvænleg. Frásagnargleði og innsæi Kristmanns í mannlegan vanmátt og breyskleika hrífur lesandann með sér inn í straum örlaga og ásta.

Ofurefli

eftir Einar Kvaran

Ofurefli er fyrsta Reykjavíkursagan, örlagasaga frá fyrstu árum 20. aldarinnar. Aldís Baldvinsdóttir les.

Ofurefli

eftir Einar Kvaran

Ofurefli er fyrsta Reykjavíkursagan, örlagasaga frá fyrstu árum 20. aldarinnar. Guðmundur Ingi Kristjánsson les.

Piltur og stúlka

eftir Jón Thoroddsen

Löngum hefur verið talað um Pilt og stúlku sem fyrstu íslensku nútímaskáldsöguna. Sagan hefur lengi lifað með þjóðinni og mun eflaust lifa lengi enn.

Skugginn af svartri flugu

eftir Erlend Jónsson

Skugginn af svartri flugu eftir Erlend Jónsson kom fyrst út árið 2002. Sagan er bæði skemmtileg og spennandi, og auk þess endurspeglar hún íslenskan veruleika á áhugaverðan hátt og fellur t.a.m. vel inn í þær umræður sem efnahagshrunið kallaði fram.

Sól á heimsenda

eftir Matthías Johannessen

Sagan er öðrum þræði ferðasaga, en þó er ferðalagið meir notað sem áhugaverð umgjörð utan um almennar hugleiðingar og minningar aðalpersónunnar. Sögusviðið er Algarve í Portúgal og höfundur notar umhverfið til að skapa stemningu sem margir ættu að geta fundið sig í.

Sögur frá Skaftáreldi I: Holt og Skál

eftir Jón Trausta

Sögur frá Skaftáreldi I–II voru fyrstu sögulegu skáldsögur Jóns Trausta (Guðmundar Magnússonar), en þar notar hann Skaftárelda sem umhverfi fyrir dramatíska atburðarás.

Sögur frá Skaftáreldi II: Sigur lífsins

eftir Jón Trausta

Sögur frá Skaftáreldi I–II voru fyrstu sögulegu skáldsögur Jóns Trausta (Guðmundar Magnússonar), en þar notar hann Skaftárelda sem umhverfi fyrir dramatíska atburðarás.

Upp við fossa

eftir Þorgils gjallandi

Skáldsagan Upp við fossa vakti gríðarlega athygli er hún kom út. Var hún skrifuð í anda raunsæis og þar var fjallað frjálslegar um ástarlíf fólks en menn áttu að venjast, auk þess sem höfundur deildi þar hart á ýmsar venjur og siði samfélagsins sem fáir höfðu þorað fram að því.

Vatnaskil: Dagbókarsaga

eftir Matthías Johannessen

Í þessari áhugaverðu og einlægu frásögn meistara orðsins segir frá hugleiðingum rithöfundar og fyrrum blaðamanns sem sestur er í helgan stein. Efnið er í senn alvarlegt og skemmtilegt þegar rithöfundurinn hugleiðir það sem hann óttast mest, elliheimilið þar sem eiginkonan þó vinnur.

Veislan á Grund

eftir Jón Trausta

Í Veislunni á Grund er fjallað um atburði sem áttu sér raunverulega stað árið 1362. Voru þá nákvæmlega hundrað ár liðin frá því að Íslendingar lentu undir valdi Noregskonunga í kjölfar borgarastríðsins sem stóð yfir á 13. öld. Höfundur fylgir staðreyndum og persónum eftir af mikilli nákvæmni, en skáldar svo í eyðurnar af listfengi.

Vistaskipti

eftir Einar Hjörleifsson Kvaran

Vistaskipti er ein af hinum sígildu íslensku sveitasögum í anda raunsæis. Hér segir frá piltinum Steina sem er á sveitinni eftir lát föður síns.

 

Hlusta.is