Hlusta.is
þjóðsögur

Afturgöngur

Þjóðsögur Jóns Árnasonar

Í þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar eru fjölmargar sögur af afturgöngum, en þær eru einn af þremur flokkum draugasagna.

Álfar

Þjóðsögur Jóns Árnasonar

Trúin á álfa og huldufólk hefur fylgt íslensku þjóðinni öldum saman. Þjóðsagnasafn Jóns Árnasonar inniheldur fjölmargar sögur af álfum og samskiptum þeirra við mannfólkið.

Átján barna faðir í álfheimum

 

Bakkabræður

íslenskar þjóðsögur

Hinir vitgrönnu bræður frá Bakka - þeir Gísli, Eiríkur og Helgi - gera hver heimskupörin á fætur öðrum.

Búkolla

Hér segir frá Helgu karlsdóttur sem fer af stað að leita kýrinnar Búkollu. Hún finnur hana loks í helli ægilegrar skessu.

Búkolla og strákurinn

Kýrin Búkolla hefur ráð undir rifi hverju.

Draugssonurinn

 

Dýrhóll

íslensk þjóðsaga

Hér segir frá því hvers vegna hæð nokkur á Lágheiði í Ólafsfirði nefnist Dýrhóll, en sagan er úr safni Jóns Árnasonar.

Farðu yfir Hrútafjarðarháls

íslensk þjóðsaga

Í Þjóðsögum Jóns Árnasonar segir frá tveimur kerlingum, hvorri frá sínum landshluta, sem hittast og komast í hár saman.

Fiskaþjófurinn

íslensk þjóðsaga

Hér segir frá bóndanum Sveini sem kemst að því að maður nokkur hefur verið að stela frá honum fiski. En Sveinn er fjölkunnugur og finnur leið til að kenna þjófnum lexíu.

Frá Hvanndala-Árna

Hér segir frá Hvanndala-Árna og viðskiptum hans við bjarndýr.

Herðaskjólið

Hér segir frá stúlkunni Settu sem langar ósköp mikið til að sauma sér millipils fyrir jólin, en á ekkert efni í það. Dag nokkurn finnur hún fallegt herðaskjól á förnum vegi.

Kerling vill hafa nokkuð fyrir snúð sinn

úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar

Hér segir frá fátækum hjónum sem eiga ekkert verðmætt nema gullsnúð af snældu kerlingar. Dag einn týnist snúðurinn og í ljós kemur að nágranni þeirra, huldumaðurinn Kiðhús, hefur tekið hann. Kerling vill þá fá ýmislegt frá Kiðhús í skiptum fyrir snúðinn.

Lengi má illt versna

íslensk þjóðsaga

Lengi má illt versna er þjóðsaga úr safni Torfhildar Hólm. Hér segir frá ósvífnum valdamanni sem fær á baukinn frá hreinskilnum förukarli.

Nú skyldi ég hlæja væri ég ekki dauður

íslensk þjóðsaga úr safni Jóns Árnasonar

Hér segir frá tveimur konum sem keppast um það hvor þeirra eigi heimskari mann.

Franska sjalið

Ungur maður kaupir forkunnarfagurt franskt sjal handa unnustu sinni. Stuttu síðar fer hana að dreyma undarlegan draum sem tengist sjalinu.

Gilitrutt

Flestir þekkja þjóðsöguna um Gilitrutt.

Óskin

flökkusaga

Ungur maður, sonur fátækra hjóna, hlýtur eina ósk. Foreldrar hans og eiginkona hafa öll skoðun á því hvers hann skuli óska sér, en hvernig tekst honum að gera þeim öllum til hæfis með aðeins einni ósk?

Sagan af Loðinbarða

úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar

Þessi þekkta saga úr safni Jóns Árnasonar segir frá þremur systrum og viðureign þeirra við tröllkarlinn Loðinbarða.

Suðurferða-Ásmundur

 

Tröllin á Vestfjörðum
Uppruni Drangeyjar

 

Velvakandi og bræður hans

Þessi skemmtilega íslenska þjóðsaga segir frá bræðrum nokkrum sem bera nöfn með rentu. Gunnar Hansson les.

Velvakandi og bræður hans

Þessi skemmtilega íslenska þjóðsaga segir frá bræðrum nokkrum sem bera nöfn með rentu. Ingólfur Kristjánsson les.

Þjóðsagnakver Magnúsar Bjarnasonar

eftir Magnús Bjarnason frá Hnappavöllum

 

Þjóðsögur: Baulaðu nú

Baldur Hafstað tók saman

Sögurnar í þessu safni eru valdar með unglinga í huga. Nota má efni sagnanna til að skapa umræður um atriði sem snerta líf hvers manns og brennandi málefni í samtíma.

   

 

Hlusta.is